Breytingar framundan á hrávörumörkuðum
- Rannsóknasetur verslunarinnar
- 4 days ago
- 2 min read
RSV birtir mánaðarlegar vísitölur valinna hrávöruverða og hefur nú birt vísitölur aprílmánaðar á innri vef sínum, veltan.is
Aðeins hefur slegið á hækkanir á kaffi og kakói frá fyrri mánuðum en aldrei hefur verð á kókosolíu mælst hærra. Hráolíuverð er enn lækkandi og það sama má segja um verð á kolum. Gullverð heldur áfram að hækka en rekja má hækkanir á því til aukinnar óvissu á mörkuðum.
Alþjóðabankinn hefur gefið út spá fyrir 2025 og 2025 þar sem spáð er verulegri lækkun á hrávöruverðum á árinu 2025. Lækkunin komi til vegna hægari hagvaxtar sem og aukinnar viðskiptategðju á heimsvísu. Samkvæmt spá Alþjóðabankans munu heildarverð á hrávörum lækka um 12% árið 2025 og um 5% til viðbótar árið 2026. Olíuverð vegur þyngst í þessari þróun, með spá um að Brent-verð falli niður í 64 USD á tunnu 2025 og 60 USD árið 2026.
Verðlækkun er spáð á flestum orkugreinum. Olíuframboð muni aukast meira en eftirspurn, einkum vegna hægari hagvaxtar og minni olíunotkunar á hverja framleidda einingu. Jarðgasverð í Bandaríkjunum hækki þó verulega vegna aukinnar útflutningsvirkni. Alþjóðabankinn spáir að verð á málmum muni lækka um 10% árið 2025 og 3% árið 2026, sérstaklega á járngrýti, kopar og áli, þar sem efnahagshorfur draga úr iðnaðarframleiðslu. Gull og silfur komi hins vegar til með að hækka áfram vegna mikillar óvissu og öruggs skjóls fyrir fjárfesta.
Talið er að verð á landbúnaðarvörum falli lítillega (-1% árið 2025), en að verð á drykkjarvöru (kaffi og kakó) hækki vegna veðurfarslegra áfalla. Kornverð, einkum hrísgrjón, lækki vegna bætts framboðs.
Helstu áhættuþættir snúa að versnandi viðskiptastríðum, minni hagvexti, aukinni framleiðslu OPEC+, veðurofsa og mögulegum átökum sem gætu haft áhrif á framboð. Hins vegar gæti verð hækkað ef viðskiptahindranir minnka eða efnahagur batnar hraðar en vænst er.