top of page

Innlend kortavelta hækkar um 7,1% milli ára

Innlend kortavelta nam 86,5 milljörðum króna í september 2023 og hækkar um 7,1% á milli ára. Þá lækkar hún á milli mánaða um 6%. Netverslun innanlands nemur 15,4 milljörðum króna og hækkar um 25% á milli ára. Erlend kortavelta nemur 31,6 milljarði króna og hækkar um 17% á milli ára. Allar tölur eru á breytilegu verðlagi.


Sundurliðaða greiningu á kortaveltunni eftir verslun og þjónustu má nálgast inn á Veltunni.


Rannsóknasetur verslunarinnar RSV birtir mánaðarlega gögn um kortaveltu á Veltunni, www.veltan.is. Kortaveltan er sundurliðuð eftir þjóðerni og tegundum verslana og þjónustu auk þess sem netverslun er sundurgreind frá verslun í búðum og kortavelta erlendra ferðamanna er skoðuð sérstaklega. Hægt er að kaup aðgang að Veltunni á vefnum veltan.is.


Um gögnin:

  • Upplýsingar byggðar á kortaveltugögnum frá færsluhirðum, nánar tiltekið Rapyd, Teya og Netgíró. Gögnin koma frá færsluhirðum niðurbrotin á verslun og vefverslun.

  • Gögnin innhalda ekki einkaneyslulán (raðgreiðslur, yfirdráttur o.þ.h).

  • Tímabilið er almanaksmánuðir (ekki hefðbundið kortatímabil).

  • Gögnin innhalda bæði debet og kreditkort, einstaklinga og fyrirtækja

  • Gögnin sýna þróun á breytilegu verðlagi.

  • Nánar má lesa um kortaveltu RSV í lýsigögnum hér.

133 views
bottom of page