Heildar greiðslukortavelta var 117,06 milljarðar króna hér á landi í maí mánuði
Greiðslukortavelta með innlend kort var 90 milljarðar og jókst um 10,2% milli mánuða og 4,9% milli ára. Innlend kortavelta í verslun var 49 milljarðar og jókst um 5,5% milli ára.
Heildarvelta erlendra ferðamanna hér á landi var 27 milljarður og eykst um 53,6% milli ára.
Kortavelta RSV
Rannsóknasetur verslunarinnar RSV birtir mánaðarlega gögn um kortaveltu á notendavef sínum, Sarpi. Kortaveltan er sundurliðuð eftir þjóðerni og tegundum verslana og þjónustu auk þess sem netverslun er sundurgreind frá verslun í búðum og kortavelta erlendra ferðamanna er skoðuð sérstaklega. Hægt er að kaup aðgang að Sarpi RSV í áskrift á vef RSV.
Um gögnin:
Upplýsingar byggðar á kortaveltugögnum frá færsluhirðum, nánar tiltekið Valitor, Teya, Rapyd og Netgíró. Gögnin koma frá færsluhirðum niðurbrotin á verslun og vefverslun.
Gögnin innhalda ekki einkaneyslulán (raðgreiðslur, yfirdráttur o.þ.h).
Tímabilið er almanaksmánuðir (ekki hefðbundið kortatímabil).
Gögnin innhalda bæði debet og kreditkort, einstaklinga og fyrirtækja (Fyrirtækjakort c.a. 9% af veltunni fyrir árið 2022).
Gögnin sýna þróun á breytilegu verðlagi.
Nánar má lesa um kortaveltu RSV í lýsigögnum hér.