top of page

Mikill samdráttur í veltu ferðamanna á milli ára

Kortavelta innanlands nemur 81,8 milljörðum króna í apríl 2024. Það er 0,12% hækkun á milli ára á breytilegu verðlagi. Kortavelta í innlendri netverslun nemur 15,025 ma.kr. og eykst um 17,4% á milli ára. Þá er samdráttur í neyslu ferðamanna á landinu í apríl en erlend kortavelta nemur 16,75 ma.kr. og dregst saman um 24% á milli ára. 


Innlend kortavelta er tvískipt eftir þjónustu og verslun. Þjónusta nemur 37,4 milljörðum króna og eykst um 0,8% á milli ára og verslun nemur 44,4 milljörðum króna og dregst saman um 0,5% á milli ára


Nánari upplýsingar um aðra undirflokka má nálgast á Veltunni.


Rannsóknasetur verslunarinnar RSV birtir mánaðarlega gögn um kortaveltu á Veltunni, www.veltan.is. Kortaveltan er sundurliðuð eftir þjóðerni og tegundum verslana og þjónustu auk þess sem netverslun er sundurgreind frá verslun í búðum og kortavelta erlendra ferðamanna er skoðuð sérstaklega.


Um gögnin:

  • Upplýsingar byggðar á kortaveltugögnum frá færsluhirðum, nánar tiltekið Landsbankanum, Netgíró, Rapyd og Teya. Gögnin koma frá færsluhirðum niðurbrotin á verslun og netverslun.

  • Gögnin innhalda ekki einkaneyslulán (raðgreiðslur, yfirdráttur o.þ.h).

  • Tímabilið er almanaksmánuðir (ekki hefðbundið kortatímabil).

  • Gögnin innhalda bæði debet og kreditkort, einstaklinga og fyrirtækja

  • Gögnin sýna þróun á breytilegu verðlagi.

  • Gögn frá erlendum færsluhirðum eru ekki í tölum RSV en sum ferðaþjónustufyrirtæki hafa náð samningum við erlenda færsluhirðingu.

  • Nánar má lesa um kortaveltu RSV í lýsigögnum hér.


58 views
bottom of page