Íslendingar eru oft hinir bærilegustu neytendur, sama hvað gengur á í þjóðfélaginu. Þá sérstaklega hættum við ekkert að kaupa okkur föt eða skó. Það er gömul mýta og ný að við erum alveg hætt að fara út í búð, verslum allt á netinu og fáum allt sent heim. Það er þó alls ekki þannig, yngri kynslóðin er kannski komin með þann vana en stundum þurfum við bara að fara út í búð og máta. Hér koma nokkrar áhugaverðar tölur fyrir árið 2023 í fataverslun.
Tæplega þriðjungur Íslendinga (31,3%) verslar föt og skó á netinu á meðan hinir (68,7%) gerir sér ferð út í búð og borgar í posa.
Þó að tæplega þriðjungur okkar verslar föt á netinu að þá verslum við fjórfalt meira af fötum í erlendri netverslun en af íslenskum fataverslunarfyrirtækjum sem að bjóða upp á netverslun.
Tæplega annar hver hlutur sem að Íslendingar flytja inn, og þá tala ég eingöngu um einstaklinga, eru föt eða skór (45,5%).
Við versluðum jafnmikið í netverslun við innlend fataverslunarfyrirtæki og við fengum sent af fötum frá Kína (3,7 ma.kr.) á árinu 2023.
Bretland, Bandaríkin, Víetnam og Holland koma svo fast á hæla Kína í keppninni um vinsæl lönd sem senda okkur föt eftir pantanir okkar í erlendri netverslun.
Við teljum að heildarfatamarkaðurinn á Íslandi sé í heildina 58,4 milljarðar króna á síðasta ári. Innlend fataverslun velti 39,3 milljörðum króna á árinu 2023 en þar af verslum við fyrir 3,7 milljarða króna í innlendri netverslun og 35,6 milljörðum króna í posa. Í þessum samanburði nam erlend netverslun í fötum árið 2023, 12,5 milljörðum króna eða 21,7% af fatamarkaði landsmanna. Aukningin er mest milli ára í erlendri netverslun eða 10,3% en innlend netverslun jókst um 8,1% á sama tíma. Það tónar saman við heildarfatamarkaðinn sem að jókst um 8,6% á milli ára á meðan að innlend verslun í posa jókst einungis um 2,4%.
Við kaupum alltaf mest af fötum á afsláttardögunum í nóvember og rétt fyrir jól en á móti langminnst í upphafi árs en svo eykst það með hverjum mánuðinum. En þurfum við að hafa áhyggjur af auknum umsvifum erlendra netverslana hér á landi? Spilar íslenska verðlagið svona mikið inn í? Fyrstu mánuðir ársins 2024 hafa sýnt okkur það að fataverslun í posa er að dragast saman og netverslun innanlands er að sækja í sig veðrið. Við munum samt ekki hætta að kaupa föt. Ég held að Íslendingar geti vel státað sig af því að elska að kaupa föt, þó hvernig við gerum það muni breytast með tíð og tíma.
Öll gögn RSV má nálgast inn á Veltan.is. Gögnin hér að ofan eru fengin úr Kortaveltu RSV & Veltunnar, erlendum netverslunargögnum frá Tollinum og VSK-gögnum frá Hagstofu Íslands.
Greinin birtist á Vísi í maí 2024.