top of page

Íslendingar eyddu 100 milljörðum króna í desember

Innlend greiðslukortavelta í desember nemur 100 milljörðum króna og hækkar um 0,4% á milli ára en í desember 2022 nam kortaveltan 99,67 milljörðum króna. Greiðslukortavelta í verslun nemur 62,7 milljörðum króna í desember og hækkar um 4% á milli ára. Þá vekur athygli að dagvöruverslun sem hefur verið að hækka um allt að 16-20% á síðustu mánuðum milli ára hækkar eingöngu um 9,4% á milli ára í desember. 


Erlend kortavelta dregst saman milli ára


Erlend kortavelta dregst saman um 9,7% og nemur 14,5 milljörðum króna. Desember mánuður er eini mánuður ársins þar sem er ekki aukning í erlendri kortaveltu á milli ára en hún var hvað mest í júlí þegar hún var 41,7 milljarður króna. 


Nánari upplýsingar um kortaveltutölur í desember 2023 má nálgast í Veltunni.


Rannsóknasetur verslunarinnar RSV birtir mánaðarlega gögn um kortaveltu á Veltunni, www.veltan.is. Kortaveltan er sundurliðuð eftir þjóðerni og tegundum verslana og þjónustu auk þess sem netverslun er sundurgreind frá verslun í búðum og kortavelta erlendra ferðamanna er skoðuð sérstaklega.

Um gögnin:

  • Upplýsingar byggðar á kortaveltugögnum frá færsluhirðum, nánar tiltekið Rapyd, Teya, Netgíró og Landsbankanum. Gögnin koma frá færsluhirðum niðurbrotin á verslun og vefverslun.

  • Gögnin innhalda ekki einkaneyslulán (raðgreiðslur, yfirdráttur o.þ.h).

  • Tímabilið er almanaksmánuðir (ekki hefðbundið kortatímabil).

  • Gögnin innhalda bæði debet og kreditkort, einstaklinga og fyrirtækja

  • Gögnin sýna þróun á breytilegu verðlagi.

  • Nánar má lesa um kortaveltu RSV í lýsigögnum hér.



112 views
bottom of page