top of page

Kortavelta Íslendinga eykst um 7,1% á milli ára

Kortavelta Íslendinga nemur 80,3 milljörðum króna í febrúar 2024 samanborið við 75 milljarða króna í febrúar 2023 og eykst um 7,1% á milli ára á breytilegu verðlagi. 


- Erlend kortavelta nemur 18,9 milljörðum króna í febrúar 2024 og stendur í stað, var það sama í febrúar 2023.

- Innlend netverslun heldur áfram að vaxa og nemur 15,3 milljörðum króna og hækkar um 20,6% á milli ára.


Nánari upplýsingar um aðra undirflokka má nálgast á Veltunni.


Rannsóknasetur verslunarinnar RSV birtir mánaðarlega gögn um kortaveltu á Veltunni, www.veltan.is. Kortaveltan er sundurliðuð eftir þjóðerni og tegundum verslana og þjónustu auk þess sem netverslun er sundurgreind frá verslun í búðum og kortavelta erlendra ferðamanna er skoðuð sérstaklega.

Um gögnin:

  • Upplýsingar byggðar á kortaveltugögnum frá færsluhirðum, nánar tiltekið Rapyd, Teya, Netgíró og Landsbankanum. Gögnin koma frá færsluhirðum niðurbrotin á verslun og vefverslun.

  • Gögnin innhalda ekki einkaneyslulán (raðgreiðslur, yfirdráttur o.þ.h).

  • Tímabilið er almanaksmánuðir (ekki hefðbundið kortatímabil).

  • Gögnin innhalda bæði debet og kreditkort, einstaklinga og fyrirtækja

  • Gögnin sýna þróun á breytilegu verðlagi.

  • Nánar má lesa um kortaveltu RSV í lýsigögnum hér.


129 views
bottom of page