top of page

Kortavelta Íslendinga lækkar um 2,7% á milli mánaða

Kortavelta Íslendinga nemur 84,17 milljörðum króna og lækkar um 2,7% á milli mánaða en hækkar um 6,2% á milli ára. Erlend kortavelta nemur 24,8 milljörðum króna og lækkar um 22% á milli mánaða en hækkar um 20,5% á milli ára.


Á meðan flestir undirflokkar verslunar fara lækkandi á milli mánaða þá eykst fataverslun Íslendinga um 10,8% á milli mánaða (9,2% á milli ára). Þá vekur athygli að erlendir ferðamenn eru ekki jafn mikið að versla sér föt í október og Íslendingar en fataverslun til erlendra ferðamanna dróst saman um 41,4% á milli ára.


Allar tölur eru á breytilegu verðlagi.


Rannsóknasetur verslunarinnar RSV birtir mánaðarlega gögn um kortaveltu á Veltunni, www.veltan.is. Kortaveltan er sundurliðuð eftir þjóðerni og tegundum verslana og þjónustu auk þess sem netverslun er sundurgreind frá verslun í búðum og kortavelta erlendra ferðamanna er skoðuð sérstaklega. Hægt er að kaupa aðgang að Veltunni á vefnum veltan.is.


Um gögnin:

  • Upplýsingar byggðar á kortaveltugögnum frá færsluhirðum, nánar tiltekið Rapyd, Teya og Netgíró. Gögnin koma frá færsluhirðum niðurbrotin á verslun og vefverslun.

  • Gögnin innhalda ekki einkaneyslulán (raðgreiðslur, yfirdráttur o.þ.h).

  • Tímabilið er almanaksmánuðir (ekki hefðbundið kortatímabil).

  • Gögnin innhalda bæði debet og kreditkort, einstaklinga og fyrirtækja

  • Gögnin sýna þróun á breytilegu verðlagi.

  • Nánar má lesa um kortaveltu RSV í lýsigögnum hér.


86 views
bottom of page