top of page

Kortavelta Kínverja dregst mikið saman

Erlend greiðslukortavelta án flugsamgangna dróst saman um 8,5% í febrúar og nam 14,1 milljarði í mánuðinum samanborið við 15,4 ma. í febrúar í fyrra. Kortavelta erlendra ferðamanna til þjónustuflokka á netinu dróst saman um 4,4% á milli ára í febrúar. Netgreiðslur ferðamanna eru að stórum hluta til greiðslur fyrir ferðir sem fara á síðar og gefa því vísbendingu um hug ferðamanna til Íslandsferðar. Miðað við þessa hóflegu lækkun má segja að áhrif vegna COVID-19 hafi ekki verið komin fram af neinum þunga í febrúar og verður áhugavert að skoða þróunina í framhaldinu. Sé litið til sama mælikvarða, það er kortaveltu þjónustuflokka á netinu, fyrir Kínverja eingöngu þá dróst veltan saman um 62%, enda veiran fyrr á ferð í Kína en annarsstaðar. Í stærstu flokkum greiðslukortaveltu erlendra ferðamanna, hótelgistingu, ýmis ferðaþjónusta og verslun var töluverður samdráttur milli ára. Mestu munar um samdrátt í tveimur fyrrnefndu flokkunum. Gistiþjónusta dróst saman um 10% á milli ára og nam 3,2 ma. kr. í mánuðinum, í krónum talið nam lækkunin tæpum 389 millj. kr. Í flokknum ýmis ferðaþjónusta, sem inniheldur skipulagðar ferðir, nam veltan 2,9 ma. kr. Á sama tíma í fyrra nam veltan 3,2 ma. og dróst hlutfallslega saman um 11% á milli ára í febrúar. Verslun erlendra ferðamanna með greiðslukortum dróst saman um 5% samanborið við fyrra ár og nam 2 milljörðum í febrúar. Dróst verslun saman í öllum undirflokkum verslunar nema í verslun með gjafa- og minjagripi sem jókst um 6% á milli ára. Dagvöruverslun minnkaði um 3% miðað við sama tíma í fyrra og nam 624 millj. kr. Velta í fataverslun nam 313 millj. kr. og dróst saman um 16% á milli ára í febrúar. Litið til markaðssvæða var samdráttur kortaveltunnar í febrúar mestur hjá Bandaríkjamönnum, 805 milljónir króna eða 18%, samanborið við febrúar í fyrra. Næst mestur var samdrátturinn hjá Kínverjum, 451 milljón eða 61% og þá Kanadabúum 146 mkr. eða 30%. Vöxtur var meðal nokkurra þjóðerna, mest meðal Þjóðverja, 69 milljónir króna (9%) og Hollendinga 59 milljónir króna (20%).


Miklir hagsmunir í húfi vegna ferðabanns BNA Tilkynning Bandaríkjaforseta um að loka á ferðalög frá Evrópu í 30 daga kom mörgum í opna skjöldu. Bandaríkjamenn eru mikilvægasta markaðssvæði ferðaþjónustu á Íslandi og ljóst að áhrifin verða tilfinnanleg. Í mars og apríl í fyrra greiddu Bandaríkjamenn með kortum sínum 5,8 og 4,4 milljarða til innlendra fyrirtækja, að flugsamgöngum undanskildum. Bandaríkjamönnum hefur fækkað nokkuð undanfarin misseri og tekjur af þeim lækkað samhliða því. Hluti tekna í ferðaþjónustu koma með öðrum leiðum en greiðslukortum, en hlutfall greiðslukorta er í kring um 50%. Ef gert er ráð fyrir sömu þróun tekna af bandarískum ferðamönnum og áðurnefndu hlutfalli má ætla að íslensk ferðaþjónusta verði af 7 til 8 milljörðum með beinum hætti vegna þeirra sem hefðu komið þann mánuð sem verður lokað. Má þó gera ráð fyrir því að áhrifin verði meiri enda má áætla að aðrar flugáætlanir muni riðlast vegna ferðabannsins. Þá má líta svo á að aðgerðir stjórnvalda vestanhafs séu ekki til hvatningar fyrir þarlenda ferðamenn til ferðalaga til Evrópu næstu mánuði.

6 views
bottom of page