top of page

Kortavelta erlendra ferðamanna aldrei mælst hærri

Heildar greiðslukortavelta* í ágúst sl. nam rúmum 125,2 milljörðum kr. og jókst um 23,9% á milli ára miðað við breytilegt verðlag.


Kortavelta erlendra ferðamanna hefur aldrei mælst hærri en í ágúst sl. og nam hún rúmum 37,9 milljörðum kr. Veltan jókst um tæp 7,3% á milli mánaða en um 56,8% á milli ára. Hlutfall erlendrar kortaveltu af heildarkortaveltu á Íslandi var 30,3% í ágúst sl. sem er næstum jafnt því sem var í ágúst 2019, en sama hlutfall var þá tæp 30,6%. Ferðamenn frá Bandaríkjunum eru ábyrgir fyrir 39% af allri erlendri kortaveltu hérlendis í ágúst sl. Þjóðverjar koma næstir með 9,3% og svo Ítalir með 7,9%.


Heildar kortavelta Íslendinga hérlendis nam 87,3 milljörðum kr. í ágúst sl. og jókst um 13,5% á milli ára miðað við breytilegt verðlag. Innlend kortavelta í verslun nam rúmum 44,8 milljörðum kr. í ágúst sl. sem er 5,33% meira en á sama tíma í fyrra. Innlend kortavelta í þjónustu nam rúmum 42,4 milljarði kr. í ágúst sl. og jókst hún um rúm 23,7% á milli ára.


Netverslun heldur áfram að aukast en innlend kortavelta í verslun á netinu nam rúmum 3,3 milljörðum kr. í ágúst sl. Jókst hún um rúm 20% á milli ára. Netverslun í matvöruverslunum jókst mest en netverslun í flokknum "Stórmarkaðir og dagvöruverslanir" jókst um tæp 37,9% frá fyrra ári.


Heildar velta innlendra greiðslukorta í verslunum og þjónustu erlendis nam rúmum 25,4 milljörðum kr. í júlí sl. og hefur ekki verið hærri að nafnvirði frá upphafi mælinga, árið 1997.

Veltan jókst um rúma 10 milljarða kr. frá fyrra ári.


Nánar má lesa um kortaveltu í ágúst s.l. í mánaðarlegri samantekt RSV hér fyrir neðan:


320 views

Úttekt á kortaveltugögnunum

Rannsóknasetur verslunarinnar fór í ítarlega útttekt á kortaveltugögnunum sínum til þess að tryggja áframhaldandi gæði gagnanna og urðu nokkrar minniháttar breytingar á gögnunum fyrir árið 2023. RSV á

bottom of page