Panelhópur RSV
Rannsóknasetur verslunarinnar (RSV) keyrir nokkrar rannsóknir á ári sem flestar snúa að kauphegðun, netverslunum, samfélagsmiðlum eða öðru sem nýst getur íslenskri verslun og þjónustu.
Rannsóknirnar fara flestar fram í formi þægilegra netkannana en stöku sinnum leitum við til fólks um að koma í rýnihóp. Rýnihópar eru umræðuhópar þar sem lítill hópur fólks hittist (yfirleitt á Teams) í ca 45 mín og ræðir þar skoðanir sínar eða upplifun fyrirframákveðnu máli.
Í hvert skipti sem leitað er til þín um þátttöku í rannsókn (könnun eða rýnihóp) er verkefnið kynnt og þú getur valið að taka þátt eða ekki.
Með því að skrá netfang þitt hér fyrir neðan samþykkir þú að fá pósta frá RSV sem snúa að panelhóp RSV.
Við leitumst við að senda ekki út of marga pósta á hverju ári.
Happdrætti - Dregið verður úr skráðum þátttakendum, 20.000 kr Dineout gjafabréf.
