top of page

Erlend netverslun heldur áfram að vaxa

Rannsóknasetur verslunarinnar birtir mánaðarlega á Veltunni upplýsingar um umfang erlendrar netverslunar Íslendinga. Nýjar tölur fyrir júní sýna að áfram er töluverður vöxtur í kaupum Íslendinga frá erlendum netverslunum.


Erlend netverslun nam 3,4 milljörðum króna í júní og jókst um 13,2% frá sama mánuði í fyrra.


Þegar fyrri helmingur ársins 2026 er skoðaður í heild kemur sama þróun í ljós. Á fyrstu sex mánuðum ársins versluðu Íslendingar fyrir tæpa 17,5 milljarða króna í erlendum netverslunum, samanborið við tæpa 15,8 milljarða á sama tímabili í fyrra. Það jafngildir 10,8% aukningu milli ára.


Vöxturinn er þó mismikill eftir vöruflokkum. Mest aukning varð í kaupum á heimilisbúnaði, sem jukust um 23,6% milli ára. Fatnaður er áfram langstærsti einstaki vöruflokkurinn í erlendri netverslun Íslendinga. Á fyrri helmingi ársins námu kaup á fatnaði frá erlendum netverslunum rúmum 7,2 milljörðum króna og jukust um 9% frá fyrra ári.


Nánari sundurliðun eftir vöruflokkum, mánaðarleg þróun og fleiri lykiltölur um verslun má finna á Veltan.is.


 

 
 
bottom of page