top of page
Profile
Join date: Jan 12, 2022
Posts (168)
Jul 23, 2026 ∙ 1 min
Erlend netverslun enn á uppleið í maí
RSV birtir mánaðarlega vísitölu erlendrar netverslunar Íslendinga. Í maí eyddu Íslendingar rúmum 3 milljörðum í erlendum netverslunum og hefur upphæðin hækkað um 7% borin saman við maí 2025. Stærsti flokkur erlendrar netverslunar er sem fyrr fatnaður og skór en hefur þó hlutfall þessa flokks af heildarveltu farið aðeins lækkandi síðustu misseri. Bendir það til þess að aðrir flokkar erlendrar netverslunar séu að sækja í sig veðrið. Hægt er að skoða þróun ólíkra flokka netverslunar á veltan.is
5
0
Jul 6, 2026 ∙ 1 min
Hækkandi verð á fiskimjöli og áli
RSV hefur birt vísitölur hrávöruverðs fyrir júnímánuð. Verð á fiskimjöli hefur hækkað um rúm 33% frá júní í fyrra og álverð er tæpum 43% hærra en á sama tíma í fyrra. Á sama tíma halda nokkrar hrávörur áfram að lækka í verði. Það á meðal annars við um kaffi, kakó, sykur, kókosolíu og appelsínur. Dregið hefur úr verðlækkun á bönunum sem hafa lækkað jafnt og þétt síðustu mánuði. Hrísgrjón hafa hins vegar hækkað nokkuð eftir óvenjulágt verð síðasta árið og nautakjöt heldur áfram að hækka í...
3
0
Jun 18, 2026 ∙ 1 min
Mikil aukning á erlendri netverslun í apríl
RSV tekur mánaðarlega saman tölur um umfang erlendrar netverslunar Íslendinga. Nú hafa tölur aprílmánaðar verið birtar og nemur erlend netverslun tæpum 2,8 milljörðum í apríl. Er það 17,90% aukning frá sama mánuði í fyrra. Á fyrstu fjórum mánuðum ársins hefur erlend netverslun aukist um 11,1% sé miðað við sama tímabil í fyrra. RSV gaf nýverið út skýrslu um erlenda netverslun 2025 þar sem farið er ítarlega í hvað Íslendingar eru að kaupa í erlendum netverslunum. https://www.rsv.is/post/netvers...
13
0
Rannsóknasetur verslunarinnar
Admin
More actions
bottom of page
