top of page

Fjórðungur skoðar vörur í verslunum en kaupir þær á netinu frá öðrum seljanda

12 minutes ago
2 min read

Rannsóknasetur verslunarinnar (RSV) tók þátt í Netverslunardegi Póstsins þann 1. október þar sem Klara Símonardóttir, forstöðumaður RSV, flutti erindið Ísland vs. heimurinn. Í erindinu var fjallað um þróun erlendrar netverslunar, kauphegðun Íslendinga og hvernig íslenskar verslanir geta styrkt samkeppnisstöðu sína gagnvart erlendum netverslunum.

Netverslanir eru ekki lengur eingöngu sölurás

Rannsóknir RSV sýna að neytendur nýta netverslanir í auknum mæli til að undirbúa kaupákvarðanir. Auk þess að kaupa vörur á netinu nota þeir netverslanir til að bera saman verð, kanna vöruúrval og afla upplýsinga um eiginleika vara.

Þessi þróun er sérstaklega áberandi meðal yngri kynslóða sem nýta netverslanir í fjölbreyttari tilgangi og gera meiri kröfur til upplýsinga um vörur.

Ein athyglisverðasta niðurstaðan er að 24,2% svarenda hafði farið í hefðbundna verslun til að skoða eða máta vöru en síðan keypt hana á netinu frá öðrum seljanda. Niðurstaðan undirstrikar mikilvægi þess að verslanir horfi á kaupferlið í heild sinni, óháð því hvar kaupin fara að lokum fram.



Verð, úrval og afhendingartími ráða mestu

Þegar þátttakendur voru spurðir hvað réði helst vali þeirra á innlendum eða erlendum netverslunum voru verð, vöruúrval og afhendingartími þau atriði sem oftast voru nefnd.

Verð vegur þar þyngst en íslenskar verslanir geta einnig styrkt stöðu sína með sérhæfingu, góðum vöruupplýsingum og hraðri afhendingu. Í svörum þátttakenda kom meðal annars fram að sumir upplifðu afhendingu frá erlendum netverslunum sem hraðari en frá innlendum.


Sendingarkostnaður og vöruskil geta hindrað kaup

Um þriðjungur svarenda nefndi háan sendingarkostnað sem hindrun við netverslun. Svipað hlutfall nefndi erfiðleika við vöruskil og að ekki væri hægt að máta eða prófa vörur fyrir kaup.

Þá höfðu 36% svarenda skilað vöru sem þeir höfðu pantað í netverslun.

Í erindinu var lögð áhersla á að fyrirtæki skoði hvernig hægt sé að draga úr þessum hindrunum, meðal annars með skýrari upplýsingum um vörur, einfaldara skilaferli og sendingarkostnaði sem tekur mið af stærð innkaupakörfunnar.



Niðurstöður rannsókna RSV veita íslenskum verslunarfyrirtækjum innsýn í kauphegðun neytenda og þau tækifæri sem felast í að bæta þjónustu og upplifun viðskiptavina í síharðnandi samkeppni við erlendar netverslanir.



 
 
bottom of page