Byggingavöruverslun aukist um 50% í erlendri netverslun
- Rannsóknasetur verslunarinnar
- 43 minutes ago
- 1 min read
Byggingavöruverslun aukist um 50% í erlendri netverslun á fyrsta fjórðungi ársins.
Rannsóknasetur verslunarinnar birtir í hverjum mánuði tölur um umfang erlendrar netverslunar Íslendinga. Birtar hafa verið tölur aprílmánaðar á innri vef RSV, veltan.is.
Örlítill samdráttur er á erlendri netverslun frá mars mánuði eða 2,66% en mikill vöxtur var í mars sl. Þegar umfang erlendrar netverslunar í apríl er borið saman við apríl 2024 er vöxtur um 4,61%.
Þegar fyrsti fjórðungur ársins er skoðaður er vöxturinn 22,68% það sem af er ári. 9,9 milljarðar í janúar til apríl 2025 sbr við 8,1 milljarð jan-apríl 2024.
Þegar horft er til einstakra flokka má sjá að fataverslun hefur aukist mest á tímabilinu eða um 630 milljónir (18,0%), önnur verslun um 436 milljónir (22,3%) og byggingavöruverslun um 377 milljónir (50,3%) á fyrsta fjórðungi ársins.