Erlend netverslun enn á uppleið
- Rannsóknasetur verslunarinnar

- Aug 19
- 1 min read
Rannsóknasetur verslunarinnar (RSV) tekur mánaðarlega saman tölur um erlenda netverslun Íslendinga. Birtar hafa verið tölur júnímánaðar og má þar sjá að enn er mikil aukning í erlendu netversluninni eða um 28% frá sama tíma í fyrra. Sé horft í aukningu frá síðasta mánuði nemur hún tæpum 6,8%. Erlend netverslun í júní nam rúmum 3 milljörðum.
Þegar bornir eru saman fyrstu sex mánuðir ársins 2025 við sama tímabil 2024 má sjá að aukning á erlendri netverslun nema 20,7% og stendur í 15,8 milljörðum samanborið við rétt rúma 13 milljarða í fyrra. Haldi þessi þróun áfram má gera ráð fyrir að erlend netverslun á árinu nái 36 milljörðum í lok árs.




