Erlend netverslun enn á uppleið í maí
- Rannsóknasetur verslunarinnar

- 2 days ago
- 1 min read
RSV birtir mánaðarlega vísitölu erlendrar netverslunar Íslendinga. Í maí eyddu Íslendingar rúmum 3 milljörðum í erlendum netverslunum og hefur upphæðin hækkað um 7% borin saman við maí 2025. Stærsti flokkur erlendrar netverslunar er sem fyrr fatnaður og skór en hefur þó hlutfall þessa flokks af heildarveltu farið aðeins lækkandi síðustu misseri. Bendir það til þess að aðrir flokkar erlendrar netverslunar séu að sækja í sig veðrið. Hægt er að skoða þróun ólíkra flokka netverslunar á veltan.is




