top of page

Erlend netverslun í mars - Hægir á vexti en mest aukning í dagvöru

RSV hefur birt tölur um erlenda netverslun fyrir marsmánuð.

Hægt hefur nokkuð á vexti erlendrar netverslunar það sem af er ári og nam aukning í mars aðeins 5,0%. Til samanburðar var aukning í erlendri netverslun í janúar á þessu ári 15,8% samaborið við sama mánuð í fyrra.


Aukning á erlendri netverslun á fyrsta ársfjórðungi er 8,99%. Til samanburðar nam aukning á fyrsta ársfjórðungi 2025 borið saman við 2024, 26,7%


Mest var aukningin í flokknum stórmarkaðir og dagvara 22,0% og verslanir með heimilisbúnað 21,0%. Ekki er þó um ferskvöru að ræða í dagvörunni heldur er stærstur hluti innflutnings í flokknum í formi fæðubótarefna.

Minnst var aukning í flokknum fataverslanir eða 5,5% en sá flokkur er stærstur í krónum talið.


Hægt er að kynna sér tölurnar frekar á áskriftarvef RSV, veltan.is



 
 
bottom of page