top of page

Netverslunarvísir RSV lækkar um 5% á milli mánaða

Vísitala erlendrar netverslunar, Netverslunarvísir RSV, lækkar um 5% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitalan lækkað um 0,2%. Landsmenn keyptu því 0,2% minna frá erlendum netverslunum í febrúar sl. miðað við í febrúar í fyrra.


Mestur var samdrátturinn í flokki áfengisverslunar (-13,2%) en erlend netverslun með fatnað í febrúar sl. dróst saman um 3,9% á milli ára. Mikil aukning var á milli ára í erlendri netverslun með matvöru (68,5%) og vörur frá lyfja-, heilsu- og snyrtivöruverslunum (36,7%).

Landsmenn keyptu vörur frá erlendum netverslunum fyrir rúma 1,83 milljarða kr. í febrúar sl. Þar af voru tæpar 800 milljónir kr. vegna fataverslunar. Til samanburðar keyptu landsmenn vörur frá innlendum netverslunum fyrir tæpa 3,2 milljarða kr. í febrúar sl. Þar af voru tæpar 227 milljónir kr. vegna fataverslunar.


Upplýsingum um erlenda netverslun landsmanna í febrúar sl. hefur verið bætt við Netverslunarvísi RSV á Sarpi.


Nánari útskýringar um Netverslunarvísi RSV má nálgast í lýsigögnum.

Nánari upplýsingar veitir:

Sigrún Ösp Sigurjónsdóttir

Forstöðumaður RSV

S: 533-3530

91 views

Úttekt á kortaveltugögnunum

Rannsóknasetur verslunarinnar fór í ítarlega útttekt á kortaveltugögnunum sínum til þess að tryggja áframhaldandi gæði gagnanna og urðu nokkrar minniháttar breytingar á gögnunum fyrir árið 2023. RSV á

bottom of page