top of page

Gull og silfur í hæstu hæðum

Síðustu misseri hafa einkennst af miklum hækkunum á verðum eðalmálma á borð við gull og silfur. Gullverðið er rakið til aukinnar óvissu á mörkuðum síðustu mánuði og það sama má segja um silfur að hluta. Hluti silfurverðs er rakinn til aukinnar notkunar í iðnaði.

Í nýjustu birtingu hrávöruvísitölu RSV má sjá að kakóverð heldur áfram að lækka, gull og silfur hafa aldrei mælst hærri, ásamt því sem verð á platínu, áli, tini og kopar hefur einnig farið hækkandi.


Verð á nautakjöti á heimsmarkaði hefur aldrei verið hærra. Hlutfall erlends nautakjöts í sölu á Íslandi var um 22% árið 2024 og jókst um 20% á árinu 2025. Ársbreyting verðlags á nautakjöti í janúar sbr. við janúar 2025 nam rétt tæpum 11% og má því gera ráð fyrir að amk hluti hækkunar heimsmarkaðsverðs sé kominn fram í verðlagi hér á landi, en hækkun á öðru kjötmeti en nautakjöti nam 6-8% milli janúarmánaða.


RSV birtir mánaðarlega vísitölu hrávöruverðs þar sem hægt er að fylgjast með fjölda hrávörverða bundnum við gengi íslenskrar krónu gagnvart dollar. Einnig er birt ársbreyting verðlags valinna flokka dag- og heimilisvöru. 


Hér fyrir neðan má sjá hrávöruverðsvísitölu silfurs frá 2010.



 
 
bottom of page