Hækkandi verð á fiskimjöli og áli
- Rannsóknasetur verslunarinnar

- 1 day ago
- 1 min read
RSV hefur birt vísitölur hrávöruverðs fyrir júnímánuð. Verð á fiskimjöli hefur hækkað um rúm 33% frá júní í fyrra og álverð er tæpum 43% hærra en á sama tíma í fyrra.
Á sama tíma halda nokkrar hrávörur áfram að lækka í verði. Það á meðal annars við um kaffi, kakó, sykur, kókosolíu og appelsínur. Dregið hefur úr verðlækkun á bönunum sem hafa lækkað jafnt og þétt síðustu mánuði. Hrísgrjón hafa hins vegar hækkað nokkuð eftir óvenjulágt verð síðasta árið og nautakjöt heldur áfram að hækka í verði.
Hægt er að skoða þróun verðlags ólíkra hrávara á vef RSV, veltan.is.
Hér má sjá þróun vísitölu hrávöruverðs á fiskimjöli.




