top of page

Jólagjöf ársins 2022

Eitt af árlegum verkefnum Rannsóknaseturs verslunarinnar (RSV) er val á jólagjöf ársins. Tilgangur verkefnisins er að greina hluta af neysluhegðun landans í aðdraganda jóla og vekja athygli á verslun í landinu.


Verkefnið fór þannig fram í ár að upplýsinga var aflað frá neytendum og verslunum um vinsælar sérvörur í aðdraganda jóla. Rýnihópur RSV kom svo saman í lok nóvember og valdi jólagjöf ársins.


Segja má að í ár hafi landsmenn komið til baka með nokkrum hvelli eftir takmörkuð mannamót og hátíðahöld undanfarinna tveggja faraldursára. Mikið hefur verið um ferðalög og skemmtanir á árinu ef marka má greiðslukortanotkun landans. Þá hefur mikið gengið á í heiminum, náttúruhamfarir, verri efnahagshorfur, ofbeldi og stríðshörmungar, sem hvatt getur landsmenn til að sækja í meiri gleði og samveru með sínum nánustu. Síðustu jól var enn mikið um samkomutakmarkanir vegna faraldursins svo gera

má ráð fyrir uppsafnaðri þörf fyrir jólasamveru og mannamótum í ár. Og hvað er skemmtilegra en að koma saman um jól, spila og ræða jólabækurnar? Nú klæðir landinn sig úr jogging gallanum, jólagjöf ársins í fyrra, fer í glamúr gallann, spilar saman, spjallar saman og skemmtir sér saman.


Jólagjöf ársins 2022 er íslenskar bækur og spil!


Þegar leið á umræður rýnihóps RSV mátti greina ákveðinn samhljóm í umræðu hópsins og þeim hugmyndum sem fram komu um jólagjöf ársins. Áhersla á samveru og skemmtun var mikil. Tíðarandinn virðist kalla á aukinn léttleika eftir hörmungar undanfarinna ára. Þá mátti greina í umræðunum ákveðinn samhljóm um mikilvægi íslenska tungumálsins sem fellur vel að tíðarandanum en umræða um varðveislu þess hefur verið fyrirferðarmikil á árinu.

Flestir neytendur völdu bækur og spil á óskalistann sinn fyrir þessi jól, en 55% svarenda völdu bækur og/eða spil þegar þeir voru spurðir „Hvaða vörur og/eða þjónustu værir þú til í að fá í jólagjöf þessi jól?“ Auk þess sem 13% aðspurðra sögðust helst vilja fá bækur eða spil í jólagjöf.


Þá gefur vísitala RSV um smásöluveltu vísbendingar um að vinsældir bókarinnar hafi aukist frá árinu 2018.


Var það niðurstaða rýnihópsins að íslenskar bækur og spil væru jólagjöf ársins. Jólagjöf ársins í ár er vinsæl meðal neytenda, selst alltaf vel fyrir jól og fellur einstaklega vel að tíðaranda sem kallar á aukinn léttleika og skemmtun. Jólagjöf ársins í ár fær okkur til að tala saman, spila saman og lesa saman sem hjálpar okkur að hlúa betur að hvort öðru og tungumálinu okkar.


Skýrslu RSV um Jólagjöf ársins 2022 má nálgast hér.


Öllum þeim sem tóku þátt í gagnaöflun RSV eru þakkaðar góðar undirtektir. Þá fá þátttakendur rýnihóps RSV sérstakar þakkir fyrir sitt framlag.


Nánari upplýsingar veitir:


Sigrún Ösp Sigurjónsdóttir

Forstöðumaður RSV

sigrun@rsv.is

s: 533 3530



392 views

Úttekt á kortaveltugögnunum

Rannsóknasetur verslunarinnar fór í ítarlega útttekt á kortaveltugögnunum sínum til þess að tryggja áframhaldandi gæði gagnanna og urðu nokkrar minniháttar breytingar á gögnunum fyrir árið 2023. RSV á

bottom of page