top of page

Innlend kortavelta dregst saman á milli mánaða

Kortavelta júlímánaðar nemur 133,8 milljörðum króna og þar af er innlend kortavelta 92,1 milljarður króna en það er lækkun um 2,2% milli mánaða en kortaveltan eykst á milli ára um 5,4%. Netverslun Íslendinga eykst um 20% á milli ára og nemur 14,6 milljörðum króna.


Erlend kortavelta eykst um 17% milli ára og nemur 41,75 milljörðum króna.


Nánari útlistun á kortaveltunni má nálgast í Sarpinum.


Kortavelta RSV


Rannsóknasetur verslunarinnar RSV birtir mánaðarlega gögn um kortaveltu á notendavef sínum, Sarpi. Kortaveltan er sundurliðuð eftir þjóðerni og tegundum verslana og þjónustu auk þess sem netverslun er sundurgreind frá verslun í búðum og kortavelta erlendra ferðamanna er skoðuð sérstaklega. Hægt er að kaup aðgang að Sarpi RSV í áskrift á vef RSV.


Um gögnin:


  • Upplýsingar byggðar á kortaveltugögnum frá færsluhirðum, nánar tiltekið Valitor, Teya, Rapyd og Netgíró. Gögnin koma frá færsluhirðum niðurbrotin á verslun og vefverslun.

  • Gögnin innhalda ekki einkaneyslulán (raðgreiðslur, yfirdráttur o.þ.h).

  • Tímabilið er almanaksmánuðir (ekki hefðbundið kortatímabil).

  • Gögnin innhalda bæði debet og kreditkort, einstaklinga og fyrirtækja

  • Gögnin sýna þróun á breytilegu verðlagi.

  • Nánar má lesa um kortaveltu RSV í lýsigögnum hér.



98 views
bottom of page