top of page

Íslendingar eyddu 9,3% meira í júní í ár

Þó að veðrið hafi verið lengi að taka sér í sumar hefur kortavelta Íslendinga aukist jafnt og þétt á árinu. Í nýjum tölum RSV um kortaveltuna hér á Íslandi í júni kemur fram að Íslendingar eyddu 9,3% meira í júní í ár samanborið við júní 2022 eða 94,24 milljörðum króna.


Erlendir ferðamenn eyddu 36 milljörðum króna í júní hér heima en er það aukning um 26% á milli ára. Þeir voru hvað duglegastir að eyða í gistiþjónustu en eyddu rúmlega 10 milljörðum króna í hótelgistingu eða aðra gistiþjónustu á Íslandi í júní.


Nánari niðurbrot á gögnunum má nálgast í Sarpinum.


Kortavelta RSV


Rannsóknasetur verslunarinnar RSV birtir mánaðarlega gögn um kortaveltu á notendavef sínum, Sarpi. Kortaveltan er sundurliðuð eftir þjóðerni og tegundum verslana og þjónustu auk þess sem netverslun er sundurgreind frá verslun í búðum og kortavelta erlendra ferðamanna er skoðuð sérstaklega. Hægt er að kaup aðgang að Sarpi RSV í áskrift á vef RSV.


Um gögnin:


  • Upplýsingar byggðar á kortaveltugögnum frá færsluhirðum, nánar tiltekið Valitor, Teya, Rapyd og Netgíró. Gögnin koma frá færsluhirðum niðurbrotin á verslun og vefverslun.

  • Gögnin innhalda ekki einkaneyslulán (raðgreiðslur, yfirdráttur o.þ.h).

  • Tímabilið er almanaksmánuðir (ekki hefðbundið kortatímabil).

  • Gögnin innhalda bæði debet og kreditkort, einstaklinga og fyrirtækja

  • Gögnin sýna þróun á breytilegu verðlagi.

  • Nánar má lesa um kortaveltu RSV í lýsigögnum hér.

169 views
bottom of page