top of page

Velta erlendra ferðamanna ekki mælst hærri að nafnvirði frá upphafi mælinga

Heildar greiðslukortavelta* í júlí sl. nam rúmum 125,1 milljörðum kr. og jókst um 15% á milli ára miðað við breytilegt verðlag.


Kortavelta erlendra ferðamanna hérlendis nam tæpum 35,4 milljörðum kr. í júlí sl. og hefur hún ekki mælst hærri að nafnvirði frá upphafi mælinga árið 2012. Veltan jókst um 24,7% á milli mánaða. Að raunvirði hefur veltan einungis mælst hærri í tveimur mánuðum frá upphafi mælinga, í júlí og ágúst árið 2018. Ferðamenn frá Bandaríkjunum voru ábyrgir fyrir 35,4% af allri erlendri kortaveltu hérlendis í júlí sl. Þjóðverjar komu næstir með 7,9% og svo Frakkar með 5,2%.


Heildar kortavelta Íslendinga hérlendis nam tæpum 89,8 milljörðum kr. í júlí sl. og jókst um 4,52% á milli ára miðað við breytilegt verðlag. Innlend kortavelta í verslun nam tæpum 48 milljörðum kr. í júlí sl. sem er 0,85% meira en á sama tíma í fyrra miðað við breytilegt verðlag. Innlend kortavelta í verslun á netinu nam tæpum 3 milljörðum kr. í júlí sl. og jókst hún um tæp 21,7% á milli ára miðað við breytilegt verðlag. Innlend kortavelta í þjónustu nam rúmum 41,8 milljarði kr. í júlí sl. og jókst hún um rúm 9% á milli ára miðað við breytilegt verðlag.


Heildar velta innlendra greiðslukorta í verslunum og þjónustu erlendis nam rúmum 25,3 milljörðum kr. í júní sl. og hefur aftur ekki verið hærri frá upphafi mælinga árið 1997. Veltan jókst um tæpa 13 milljarða kr. frá fyrra ári.


Nánar má lesa um kortaveltu í júlí s.l. í mánaðarlegri samantekt RSV hér fyrir neðan:

*Samanlögð innlend og erlend kortavelta í flokkunum verslun, þjónusta, opinber gjöld og úttektir á reiðufé.

198 views

Úttekt á kortaveltugögnunum

Rannsóknasetur verslunarinnar fór í ítarlega útttekt á kortaveltugögnunum sínum til þess að tryggja áframhaldandi gæði gagnanna og urðu nokkrar minniháttar breytingar á gögnunum fyrir árið 2023. RSV á

bottom of page