top of page

Velta innlendra greiðslukorta erlendis ekki hærri frá upphafi mælinga

Heildar greiðslukortavelta* í maí sl. nam tæpum 106,8 milljörðum kr. og jókst um 23,7% á milli ára miðað við breytilegt verðlag.


Kortavelta Íslendinga hérlendis nam tæpum 87,7 milljörðum kr. í maí sl. og jókst um 8,6% á milli ára miðað við breytilegt verðlag. Innlend kortavelta í verslun nam rúmum 46,5 milljörðum kr. í maí sl. sem er 0,23% meira en á sama tíma í fyrra miðað við breytilegt verðlag. Innlend kortavelta í netverslun nam 3,3 milljörðum kr. í maí sl. og jókst hún um rúm 8,7% á milli ára miðað við breytilegt verðlag. Innlend kortavelta í þjónustu nam rúmum 41,1 milljarði kr. í maí sl. og jókst hún um rúm 20% á milli ára miðað við breytilegt verðlag.


Heildar velta innlendra greiðslukorta í verslunum og þjónustu erlendis nam rúmum 21,5 milljörðum kr. í apríl sl. og hefur ekki verið hærri frá upphafi mælinga, árið 1997. Veltan jókst um tæpa 12,4 milljarða kr. frá fyrra ári.


Kortavelta erlendra ferðamanna hérlendis nam rúmum 19 milljörðum kr. í maí sl. og jókst um 35% á milli mánaða. Hlutfall erlendrar kortaveltu af heildarkortaveltu á Íslandi var 17,9% í maí sl. en sama hlutfall var tæp 22,3% í maí 2019. Ferðamenn frá Bandaríkjunum eru ábyrgir fyrir 37,5% af allri erlendri kortaveltu hérlendis í maí sl. Þjóðverjar koma næstir með 7,6% og svo Bretar með 7,1%.


Nánar má lesa um kortaveltu í maí s.l. í mánaðarlegri samantekt RSV hér fyrir neðan:


252 views

Úttekt á kortaveltugögnunum

Rannsóknasetur verslunarinnar fór í ítarlega útttekt á kortaveltugögnunum sínum til þess að tryggja áframhaldandi gæði gagnanna og urðu nokkrar minniháttar breytingar á gögnunum fyrir árið 2023. RSV á

bottom of page