top of page

Ferðamannavelta í september í hæstu hæðum

Heildar greiðslukortavelta* í september sl. nam rúmum 111,2 milljörðum kr. og jókst um 18,4% á milli ára miðað við breytilegt verðlag.


Kortavelta erlendra ferðamanna hérlendis hefur ekki mælst hærri í septembermánuði, að nafnvirði, frá upphafi mælinga árið 2012. Aðeins einu sinni hefur ferðamannaveltan í september mælst hærri að raunvirði, það var árið 2018. Kortavelta erlendra ferðamanna nam tæpum 26,8 milljörðum kr. í september sl. og dróst saman um tæp -29,4% á milli mánaða en jókst um 45% á milli ára. Ferðamenn frá Bandaríkjunum voru ábyrgir fyrir 38,6% af allri erlendri kortaveltu hérlendis í september sl. Þjóðverjar komu næstir með 6,7% og svo Bretar með 6,6%.


Heildar kortavelta Íslendinga hérlendis nam rúmum 84,4 milljörðum kr. í september sl. og jókst um 11,9% á milli ára miðað við breytilegt verðlag. Innlend kortavelta í verslun nam rúmum 42,9 milljörðum kr. sem er 5,28% meira en á sama tíma í fyrra. Innlend kortavelta í þjónustu nam tæpum 41,5 milljarði kr. og jókst hún um tæp 19,8% á milli ára.


Innlend kortavelta í verslun á netinu nam tæpum 3 milljörðum kr. í september sl. og jókst hún um tæp 13% á milli ára miðað við breytilegt verðlag. Mest er aukningin á milli ára í flokknum "Stórmarkaðir og dagvöruverslanir" en netverslun með mat- og dagvöru jókst um rúm 27,1% á milli ára.


Nánar má lesa um kortaveltu í september s.l. í mánaðarlegri samantekt RSV hér fyrir neðan:

*Samanlögð innlend og erlend kortavelta í flokkunum verslun, þjónusta, opinber gjöld og úttektir á reiðufé.

177 views

Úttekt á kortaveltugögnunum

Rannsóknasetur verslunarinnar fór í ítarlega útttekt á kortaveltugögnunum sínum til þess að tryggja áframhaldandi gæði gagnanna og urðu nokkrar minniháttar breytingar á gögnunum fyrir árið 2023. RSV á

bottom of page