top of page

Magnús nýr forstöðumaður RSV

Rannsóknasetur verslunarinnar (RSV) hefur ráðið Magnús Sigurbjörnsson sem nýjan forstöðumann setursins. Starfsemi rannsóknasetursins felst í að fylgjast með þróun og breytingum er varða verslun og neysluhegðun. RSV er leiðandi aðili á Íslandi í rannsóknum og tölfræðivinnslu fyrir verslun og tengdar atvinnugreinar.


Magnús lauk MBA prófi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2021 og B.Sc. gráðu í tölvunarfræði frá sama skóla árið 2011.


“Ég hlakka mikið til að stækka og efla RSV á næstu mánuðum. Við búum yfir gríðarlega mikið af upplýsingum um hvernig við sem neytandi högum okkur en þessar upplýsingar eiga bæði erindi við stjórnendur fyrirtækja og almenning,” segir Magnús.


Magnús hefur starfað sem stafrænn ráðgjafi síðustu ár með áherslu á vefþróun, vefverslanir og stafræna markaðssetningu. Þá var hann framkvæmdastjóri borgarstjórnarhóps Sjálfstæðisflokksins á árunum 2013-2017.


“Við erum mjög spennt að fá Magnús til liðs við okkur til að leiða RSV. Rannsóknasetrið hefur verið í mikilli stefnumótunarvinnu síðustu tvö ár og á haustmánuðum kynnti það nýja vöru, notendavefinn Sarpinn, en hann inniheldur allar helstu tölfræðiupplýsingar, kortaveltugögn, vísitölur, rannsóknir og greiningar er varða verslun og þjónustu í landinu. Þetta var stórt skref hjá RSV og hefur Magnús þá styrkleika sem við teljum að setrið þurfi á þessum tímapunkti til að halda áfram þessari spennandi vegferð sem setrið er á,” segir María Jóna Magnúsdóttir formaður stjórnar.


56 views

Úttekt á kortaveltugögnunum

Rannsóknasetur verslunarinnar fór í ítarlega útttekt á kortaveltugögnunum sínum til þess að tryggja áframhaldandi gæði gagnanna og urðu nokkrar minniháttar breytingar á gögnunum fyrir árið 2023. RSV á

bottom of page