top of page

Metár í erlendri netverslun

RSV hefur nú birt tölur desembermánaðar um umfang erlendrar netverslunar einstaklinga.

Erlend netverslun í desember nam rúmum 4,2 milljörðum en það er stærsti mánuður frá upphafi og rúmum 20% hærri en desember 2024.


Erlend netverslun 2025 nam 34,5 milljörðum og jókst um 15% frá fyrra ári. Enn eru engin merki á lofti um að erlend netverslun Íslendinga hafi náð hámarki sínu.


Fyrirtæki geta skoðað ítarlegri gögn um erlenda netverslun á innri vef RSV, veltan.is þar sem m.a. er brotin niður á undirflokka velta í erlendri netverslun. Á komandi vikum mun koma út skýrsla RSV „Erlend netverslun 2025“ þar sem kafað verður ofan í hvað leyndist í pökkum landsmanna á liðnu ári.



 
 
bottom of page