Netverslun 2025
- Rannsóknasetur verslunarinnar

- 23 hours ago
- 1 min read
Vissir þú að Íslendingar keyptu í erlendum netverslunum árið 2025:
Kítti fyrir 2,4 milljónir króna
Boli fyrir 1.153 milljónir króna
Ryksugur fyrir 46 milljónir króna
Ólífuolíu fyrir 3,6 milljónir króna
Kerti fyrir 24 milljónir króna
Dekk fyrir 60 milljónir króna
Þetta eru aðeins nokkur dæmi úr nýrri skýrslu RSV – „Erlend netverslun 2025" – sem gefin er út í fyrsta sinn.
Heildarvelta erlendrar netverslunar nam 34,5 milljörðum króna árið 2025 og jókst um 15% milli ára. Skýrslan fer í ítarlegar upplýsingar um stærstu innflutningsflokka og helstu upprunalönd vara og er sérstaklega gagnleg fyrir þá sem starfa í verslun og heildverslun.
Meðal þess sem skýrslan inniheldur:
Spá um þróun innlendrar og erlendrar netverslunar til 2030
Þróun erlendrar netverslunar frá 2022 í ólíkum flokkum – m.a. fataverslun, snyrtivörur, matvara, byggingavörur, raftæki og heimilisbúnaður
Nákvæmt niðurbrot á tollflokkastig – t.d. veggfóður, skyrtur, ryksugur, hunang, barnavagnar og úr
Greining á helstu upprunalöndum vara (ekki upprunaland sendingar) og umfangsmestu flokka frá 15 stærstu löndunum
Sérkafli um innflutning á fatnaði og skóm frá Svíþjóð og þróun þess frá 2016
Skýrslan nýtist þeim sem starfa í verslun og heildverslun til þess að sjá með skýrari hætti hlutfall erlendrar netverslunar í sínum flokkum.
Almennt verð skýrslunnar er 199.000 kr en áskrifendur Veltunnar fá skýrsluna á 169.000 kr í maí.Til að panta skýrsluna er best að senda póst á klara@rsv.is



