top of page

Netverslun innanlands eykst

Heildarvelta innanlands nemur 92,15 milljörðum króna og hækkar um 8,4% á milli ára á breytilegu verðlagi. Erlend kortavelta nemur 41,45 milljörðum króna og hækkar um 8% milli ára. Heildarvelta á landinu er því 133,58 milljarðar króna. Heildarkortavelta stendur í stað á milli mánaða.


Netverslun innanlands eykst um 22,8% milli ára og nemur 16,14 milljörðum króna. Þó að netverslun sé lítill hluti af heildarstærð stórmarkaða og dagvöruverslana hafa Íslendingar nýtt sér tæknina betur í búðunum og eytt 59,6% meira á milli ára í netverslunarlausnum búðanna. Heildarvelta Íslendinga í stórmörkuðum og dagvörubúðum eru 23,6 milljarðar króna og hefur aukist um 21,5% milli ára á breytilegu verðlagi.


Nánari sundurliðun á kortaveltu innanlands má nálgast í Sarpinum.


Kortavelta RSV


Rannsóknasetur verslunarinnar RSV birtir mánaðarlega gögn um kortaveltu á notendavef sínum, Sarpi. Kortaveltan er sundurliðuð eftir þjóðerni og tegundum verslana og þjónustu auk þess sem netverslun er sundurgreind frá verslun í búðum og kortavelta erlendra ferðamanna er skoðuð sérstaklega. Hægt er að kaup aðgang að Sarpi RSV í áskrift á vef RSV.


Um gögnin:

  • Upplýsingar byggðar á kortaveltugögnum frá færsluhirðum, nánar tiltekið Valitor, Teya, Rapyd og Netgíró. Gögnin koma frá færsluhirðum niðurbrotin á verslun og vefverslun.

  • Gögnin innhalda ekki einkaneyslulán (raðgreiðslur, yfirdráttur o.þ.h).

  • Tímabilið er almanaksmánuðir (ekki hefðbundið kortatímabil).

  • Gögnin innhalda bæði debet og kreditkort, einstaklinga og fyrirtækja

  • Gögnin sýna þróun á breytilegu verðlagi.

  • Nánar má lesa um kortaveltu RSV í lýsigögnum hér.


129 views

Comments


bottom of page