Sérfræðingar sitja eftir
- Rannsóknasetur verslunarinnar
- 3 minutes ago
- 1 min read
RSV birtir árlega samantekt á heildarlaunum starfaflokka í atvinnugreinaflokki G, starfandi í heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum.
Laun í atvinnugreinaflokknum hækkuðu um 5,03% milli 2023 og 2024 en mis mikið eftir starfaflokkum. Mest var hækkun hjá ósérhæfðu starfsfólki eða 8,55% en lægst hjá sérfræðingum, aðeins 1,09% á milli ára.
Skrifstofufólk í greininni hækkaði um 7,57%, stjórnendur um 4,59%, þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk um 4,48%, iðnaðarmenn og sérhæft iðnverkafólk um 4,45% og tæknar og sérmenntað starfsfólk hækkaði um 3,83% milli ára.
Hægt er að skoða launaþróun frá árinu 2014 í atvinnugreinaflokki G á innri vef RSV, veltan.is
Hér má sjá launaþróun alls í atvinnugreinaflokki G

Heimild. Hagstofa Íslands – Miðgildi reglulegra heildarlauna fullvinnandi starfsmanna.