top of page

Verðgáttin formlega opnuð

Vefurinn Verðgáttin er nú komin í loftið en hún gerir neytendum kleift að fylgjast með þróun verðlags helstu neysluvara í stærstu matvöruverslunum landsins; Bónus, Krónunni og Nettó. Í Verðgáttinni munu neytendur sjá vöruverð gærdagsins og verðsögu vörunnar. Verð uppfærast einu sinni á sólarhring samhliða gagnaskilum frá verslunum. Neytendur geta sett upp sína eigin matarkörfu, með því að velja þær vörur og það magn sem hentar þeirra innkaupum. Þannig geta neytendur borið saman verð sinnar matarkörfu á milli verslana.

Verðgáttin er liður í samkomulagi aðila vinnumarkaðarins um að fylgjast náið með þróun verðlags helstu neysluvara í samstarfi við Rannsóknarsetur verslunarinnar. Sem hluti af aðgerðum ríkisstjórnarinnar til stuðnings kjarasamninga á almennum vinnumarkaði studdi menningar- og viðskiptaráðuneytið Rannsóknasetur Verslunarinnar (RSV) um 10 milljónir króna til framkvæmdar verkefnisins. Með Verðgáttinni er aðgengi almennings að upplýsingum um þróun verðlags aukið og þannig stuðlað að auknu aðhaldi á neytendamarkaði.

290 views

Úttekt á kortaveltugögnunum

Rannsóknasetur verslunarinnar fór í ítarlega útttekt á kortaveltugögnunum sínum til þess að tryggja áframhaldandi gæði gagnanna og urðu nokkrar minniháttar breytingar á gögnunum fyrir árið 2023. RSV á

bottom of page