Verðbólga eftir vöruflokkum
- Rannsóknasetur verslunarinnar
- 15m
- 1 min read
RSV birtir mánaðarlega á veltan.is verðbólgu eftir vöruflokkum. Þar eru teknir saman ýmsir vöruflokkar og ársbreyting verðlags birt. Í dag voru tölur maímánaðar birtar og má þar sjá nokkra flokka skera sig úr. Mest var lækkun á leikjatölvum og tölvuleikjum eða 15,7%.
Hækkun var mest á súkkulaði (22,7%) en verðhækkanir á því má rekja til hækkana á hrávöruverði kakós í heiminum. Næst mest var hækkun á kartöflum (19,8%), káli (15,6%) og nautakjöti (14,5%). Mikil aukning var fyrrihluta árs í innflutningi á nautakjöti eða rúm 60% aukning á fyrstu fjórum mánuðum ársins sbr. sama tímabil í fyrra. Verðmætið jókst á sama tíma um tæp 90% sem getur bent til verulegra verðhækkana á nautakjöti erlendis frá. Hrávöruverð á nautakjöti hefur farið hækkandi undanfarin misseri en RSV birtir mánaðarlegar hrávöruverðsvísitölur á veltan.is og sjá má þróun vísitölu hrávöruverðs á nautakjöti hér fyrir neðan.
