top of page

Hver verður jólagjöf ársins 2022?

RSV leitar til innlendra verslana eftir tillögum að jólagjöf ársins


Nú er komið að hinu árlega verkefni RSV um jólagjöf ársins! Jogging gallinn varð fyrir valinu í fyrra en hvað verður í jólapakkanum í ár?


Verkefnið fer þannig fram að upplýsinga er aflað frá neytendum og verslunum um vinsælar sérvörur í aðdraganda jóla. Rýnihópur RSV, sem skipaður er völdum neytendafrömuðum, mun svo koma saman og velja jólagjöf ársins út frá gefnum upplýsingum og forsendum.


Niðurstaðan verður að þessu sinni birt þann 1. desember nk.


Til að fá upplýsingar um hvaða vörur seljast best í aðdraganda jóla leitar RSV nú til rekstraraðila verslana í landinu.


Hvetjum innlendar verslanir til að taka þátt!


Þátttaka tilkynnist með tölvupósti á netfangið rsv@rsv.is. Tilkynning um þátttöku skal innihalda upplýsingar um nafn verslunar og tengilið hennar. Tryggt er að gagnaskil fari fram með einföldum hætti svo þátttaka verði sem minnst íþyngjandi.


1,202 views

Úttekt á kortaveltugögnunum

Rannsóknasetur verslunarinnar fór í ítarlega útttekt á kortaveltugögnunum sínum til þess að tryggja áframhaldandi gæði gagnanna og urðu nokkrar minniháttar breytingar á gögnunum fyrir árið 2023. RSV á

bottom of page